Sony E-Mount Full Frame 135mm f/1.8 G-Master
SKU:NSEL135F18GM
Sony FE 135mm f/1.8 GM er ljóssterk medium-telephoto prime-linsa sem er sérstaklega hönnuð til að skila framúrskarandi skerpu og mjög fáguðu bokeh. Hún er ein vinsælasta portrait-linsan í G Master línunni og hentar einnig vel fyrir návígi í íþróttum og skapandi landslagsmyndatöku þar sem þörf er á að einangra myndefnið.
Sem hluti af Sony G Master línunni leggur hún áherslu á bæði hámarks myndgæði og mjúka bakgrunnsóskýrleika. Bjart f/1.8 ljósop gerir kleift að vinna í lítilli birtu og veitir mikla stjórn á dýptarskerpu fyrir skapandi myndbyggingu. Ellefu blaða hringlaga ljósop stuðlar að einstaklega mjúku og náttúrulegu bokeh.
Ljósfræðin inniheldur eitt XA (extreme aspherical) element sem tryggir mikla nákvæmni og dregur úr bjögun og öðrum optískum skekkjum. Tvö Extra-Low Dispersion element, þar á meðal eitt Super ED, minnka litaskekkjur og tryggja hreina og nákvæma litaframsetningu. Nano AR húðun dregur úr flare og ghosting og eykur kontrast og skýrleika við sterka birtu.
Hraðvirkt XD Linear Motor fókuskerfi ásamt innra fókuskerfi tryggir mjög hraðan, nákvæman og hljóðlátan sjálfvirkan fókus sem hentar bæði ljósmyndun og myndbandsupptökum. Lágmarks fókusfjarlægð upp á um 70 cm og allt að 0,25x stækkun gerir linsuna einnig öfluga fyrir nærmyndir með miklum smáatriðum.
Linsan er búin tveimur sérstillanlegum focus hold hnöppum sem auðvelda skjótan aðgang að mikilvægum stillingum við myndatöku. Ljósopshringinn er hægt að gera hljóðlausan (de-click) fyrir mjúkar breytingar í videovinnu.
Ryk- og rakavarin smíði gerir hana áreiðanlega við krefjandi aðstæður og fluorine húðun á fremsta linsuelementi verndar gegn óhreinindum og auðveldar þrif.