• Sony E-Mount APS-C 16-55mm f/2.8
Sony

Sony E-Mount APS-C 16-55mm f/2.8

Verð 219,000 kr
219,000 kr
Tilboðsverð
Verð
Tilboð Hafa samband

SKU:NSEL1655G.SYX





Lýsing

Sony E 16-55mm f/2.8 G er fjölhæf og ljóssterk APS-C zoom-linsa sem er hönnuð sem aðallinsa fyrir daglega notkun. Með 16–55mm brennivíðarsviði, sem jafngildir 24–82.5mm á full-frame, nær hún frá víðhorni upp í portrett-brennivídd og hentar því fyrir allt frá landslagi og götuljósmyndun yfir í portrett og videovinnu.

Sem hluti af Sony G línunni sameinar linsan framúrskarandi myndgæði, hraðan fókus og nett form sem passar fullkomlega með APS-C Alpha myndavélum frá Sony.

Stöðugt f/2.8 ljósop yfir allt zoomsviðið gerir linsuna öfluga í lítilli birtu og veitir aukna stjórn á dýptarskerpu fyrir mjúkan bakgrunn og faglegt útlit. Níu blaða hringlaga ljósop stuðlar einnig að fallegu og náttúrulegu bokeh.

Optíska hönnunin inniheldur fjögur aspherical element, þar af tvö AA (Advanced Aspherical) element, sem draga verulega úr bjögun og tryggja mikla skerpu yfir allan myndflötinn. Þrjú Extra-Low Dispersion element minnka litaskekkjur og bæta litahreinleika og skýrleika. Nano AR húðun hjálpar til við að minnka flare og ghosting fyrir meiri kontrast og betri litendurgjöf í erfiðum birtuskilyrðum.

XD Linear Motor fókuskerfið tryggir hraðan, nákvæman og hljóðlátan sjálfvirkan fókus sem hentar bæði ljósmyndun og videovinnu. Linear Response handfókus veitir náttúrulega og nákvæma fókusstýringu, auk þess sem AF/MF rofi og sérstillanlegur focus hold hnappur bæta vinnuflæði og stjórn.

Þrátt fyrir ljóssterkt f/2.8 zoom er linsan einstaklega nett og létt miðað við afköst. Hún er því frábær ferðafélagi og hentar vel fyrir daglega notkun, gimbal-vinnu og handheld upptökur.

Ryk- og rakavarin smíði gerir linsuna áreiðanlega í krefjandi aðstæðum og fluorine húðun á fremsta linsuelementi hjálpar til við að verja gegn ryki, raka og fingraförum og auðveldar þrif.