Description
ZEISS Milvus 50mm f/1.4 ZE fyrir Canon EF-festingu parar hefðbundna brennivídd við flókna Distagon-hönnun. Linsan einkennist af miklu ljósopi (f/1.4) sem tryggir góða blöndu af skerpu, skýrleika og sveigjanleika við tökur. Í hönnuninni eru fjögur glerstök með sérstakri litdreifingu (anomalous partial dispersion) og einu aspherical element gleri sem draga úr litaskekkju og bjögun, sem skilar sér í miklum skýrleika á öllu ljósopssviðinu.
Notast er við fljótandi linsukerfi (floating elements system) til að tryggja stöðug myndgæði, hvort sem myndefnið er nálægt eða fjarri. Endurbætt ZEISS T* glampavörn til að lágmarka endurkast og draugamyndir, sem bætir birtuskil og litaendurgjöf við erfið birtuskilyrði.