1. Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Beco til viðskiptavina. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum.
2. Afhendingarmáti
Vörur:
Hægt er að sækja vörur í verslun okkar að Langholtsvegi 84. Ef pöntun berst fyrir kl. 12:00 er hún yfirleitt tilbúin samdægurs. Annars er pöntunin almennt afgreidd næsta virka dag. Tilkynning berst með tölvupósti til viðskiptavinar þegar pöntunin er tilbúin.
Hægt er að velja að fá vöru senda með Póstinum í næsta póstbox. Það getur tekið 1-5 virka daga að fá pöntunina afhenta. Sendingartími getur verið mismunandi á álagstímum t.d. yfir hátíðar. Viðskiptavinur hefur 3 daga til að sækja pakkann í póstbox en eftir það er hann sendur á næsta pósthús.
Sendingargjald er breytilegt eftir stærð og þyngd pakka. Við skráningu er skráð að viðtakandi - hér kaupandi, greiði póstgjaldið hjá Póstinum.
Póstbox staðir: Póstbox
Ekki er endurgreitt sendingargjald ef um er að ræða vöruskipti eða vöruskil.
3. Sérpantanir
Við getum sérpantað frá birgjum sem Beco er í viðskiptum við.
Við getum boðið uppá betri tilboð í stærri pantanir ef það er pantað með fyrirvara. Ef varan er til á lager hjá birgjanum þá er almennur afgreiðslutími u.þ.b. 2-10 virkir dagar.
4. Greiðslumáti
Hægt er að greiða með kortum í gegnum öruggt greiðslukerfi Teya. Við tökum við VISA, Mastercard og Maestro kortum. Einnig bjóðum við upp á kortalán. Vinsamlegast hafið samband við okkur á nefangið beco@beco.is til að skrá kortalán.
Einnig er hægt að greiða vöru með því að millifæra inn á Beco ehf, kt. 520100-2960 bankanúmer 0303-26-11114. Mikilvægt er að senda afrit af millifærslu á beco@beco.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um villur.
5. Ábyrgð
Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á beco@beco.is
Beco ehf áskilur sér þann rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig og ber að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu teljist vara gölluð. Ef vara telst gölluð borgum við sendingarkostnað viðskiptavinar, ef við á.
Ábyrgðartími á vörum er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Vörur sem ætlaður er umtalsvert lengri endingartími en 3 ár geta verið með allt að 5 ára ábyrgð á framleiðslugöllum. Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á vöru.
Þegar um neytendakaup er að ræða hefur viðskiptavinur tvö ár frá móttöku söluhlutar til að leggja fram kvörtun vegna galla.
Hægt er fá nánari upplýsingar með því að senda póst á beco@beco.is eða hringja í síma 533 3411.
6. Skila- og skiptiréttur
Heimilt er að skila vöru innan 30 daga frá móttöku hennar. Viðskiptavinur getur fengið inneignarnótu gegn því að framvísa kvittun/nótu fyrir vörukaupum, en einungis ef varan er í upprunalegum umbúðum, ónotuð og óskemmd.
Ef verslað er á tilboðsdögum og vöru skilað þegar tilboðsdögum er lokið, fær viðskiptavinur inneign á því verði sem hann greiddi fyrir. Ath. kvittun verður alltaf að fylgja með.
ATH. Ekki er hægt að skila eða skipta útsöluvörum.
Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til Beco ehf.
Í lögum um neytendakaup Nr. 48/2003 er meginreglan sú að skilaréttur er ekki fyrir hendi við kaup á ógallaðri vöru.
Þrátt fyrir að í lögum um neytendakaup sé ekki að finna ákvæði um skilarétt á ógallaðri vöru veita margar verslanir neytendum rétt til að skila vörum. Á árinu 2000 gaf viðskiptaráðuneytið út verklagsreglur um skilarétt, gjafabréf og inneignarnótur.
Reglurnar eru leiðbeinandi og þeir seljendur sem fylgja þeim og auka þannig þjónustu sína við neytendur gera það að eigin frumkvæði og án lagaboðs.
Meginatriði verklagsreglnanna eru:
- Réttur til að skila ógallaðri vöru sé a.m.k. 14 dagar frá afhendingu
- Vörur sem merktar eru með gjafamerki gera kassakvittun óþarfa við skil
- Inneignarnótur skulu miðast við upprunalegt verð vöru
- Gjafabréf og inneignarnótur gilda í allt að fjögur ár frá útgáfudegi
- Skilaréttur tekur ekki til útsöluvöru.