• Canon EOS R1
  • Canon EOS R1
  • Canon EOS R1
  • Canon EOS R1
  • Canon EOS R1
Canon

Canon EOS R1

Verð 1,249,000 kr
1,249,000 kr
Tilboðsverð
Verð
Tilboð Hafa samband

SKU:N 6577C04AA



Hafa samband



Lýsing

Þegar hver sekúnda skiptir máli er EOS R1 hönnuð til að halda þér skrefi á undan. Þetta er myndavél fyrir þá sem gera kröfur um hámarksafköst – hvort sem um ræðir íþróttir, fréttaljósmyndun eða önnur krefjandi verkefni þar sem augnablikin líða hratt hjá.

Með allt að 40 römmum á sekúndu og myrkvalausum sjónglugga nærðu að fylgja atburðarásinni án truflana. Hámarkslokarahraði upp á 1/64.000 sekúndu gerir þér kleift að frysta hreyfingu af mikilli nákvæmni, á meðan Action Priority stillingin greinir lykilatburði og hjálpar þér að fanga rétt augnablik á réttum tíma.

Í hjarta vélarinnar er 24,2 megapixla stacked, baklýst Full-Frame CMOS myndflaga sem skilar bæði miklum hraða og framúrskarandi myndgæðum – jafnvel í erfiðum birtuskilyrðum. Hraður gagnalestur dregur verulega úr rolling shutter áhrifum og tryggir eðlilegri myndir við hraða hreyfingu.

Sjálfvirki fókusinn nýtir gervigreind og djúpnám til að þekkja og fylgja viðfangsefnum með áður óþekktri nákvæmni. Með 100% fókusþekju og cross-type fókuspunktum nær vélin að halda fókus yfir allan rammann. Endurbætt Eye-controlled AF gerir þér kleift að stjórna fókus einfaldlega með augnaráði, sem flýtir fyrir og einfaldar vinnuflæðið.

Fyrir myndbandsgerð býður EOS R1 upp á öfluga möguleika sem standast kröfur fagfólks. Hún tekur upp 6K RAW myndband við 60 ramma á sekúndu og 4K allt að 120 ramma á sekúndu með 10-bita litadýpt. Canon C-Log2 litferlið veitir aukið svigrúm í eftirvinnslu og tryggir faglegan lokaniðurstöður.

Helstu eiginleikar:

  • Allt að 40 rammar á sekúndu (JPEG og RAW)
  • Pre-capture virkni sem fangar augnablikið áður en smellt er
  • 9,44 milljón punkta sjóngluggi með 0,9x stækkun
  • 3" hreyfanlegur snertiskjár
  • Innbyggt lóðrétt grip fyrir betri vinnuvistfræði
  • Tvær CFexpress kortaraufar
  • Wi-Fi 6E og hraðvirk Ethernet tenging

EOS R1 er byggð til að endast við erfiðustu aðstæður og býður upp á áreiðanleika sem jafnast á við 1D X Mark III, ásamt enn fullkomnari tækni en þekkist úr EOS R3. Hún er einfaldlega verkfæri fyrir þá sem sætta sig ekki við neitt minna en það besta.

Í pakkanum fylgir:
Eyecup ER-i, Shoe Cover ER-SC3, Camera Cover R-F-5, Strap ER-L1, Battery Charger LC-E19, Battery Pack LP-E19, rafhlöðuhlíf, AC rafmagnssnúra, IFC-100U tengisnúra, kaplavörn fyrir EOS R1 og notendahandbók.