• Sony E-Mount Full Frame 24mm f/1.4 G-Master
Sony

Sony E-Mount Full Frame 24mm f/1.4 G-Master

Verð 239,990 kr
239,990 kr
Tilboðsverð
Verð
Tilboð Hafa samband

SKU:NSEL24F14GM.SYX





Lýsing

Sony FE 24mm f/1.4 GM sameinar klassískt víðhorn og einstaklega ljóssterka hönnun í léttri og nettari linsu sem hentar jafnt fyrir landslagsmyndun, stjörnuljósmyndun, götuljósmyndun og skapandi myndbandsupptökur. Með fjölhæfu 24mm sjónarhorni og björtu f/1.4 ljósopi er hún frábær kostur fyrir myndatöku við krefjandi birtuaðstæður og fyrir þá sem vilja hámarks stjórn á dýptarskerpu.

Sem hluti af Sony G Master línunni er linsan hönnuð til að skila einstakri skerpu, mikilli upplausn og fallegu bokeh með lágmarks optískum göllum. Tvö XA (extreme aspherical) element með afar nákvæmri yfirborðsvinnslu draga úr bjögun, coma, field curvature og öðrum kúluskekkjum fyrir skarpa og nákvæma mynd frá miðju út í horn.

Þrjú Extra-Low Dispersion element minnka litaskekkjur og bæta litahreinleika og skýrleika myndarinnar, á meðan Nano AR húðun dregur úr flare og ghosting og tryggir aukinn kontrast við sterka birtu eða mótljós.

Mjög ljóssterkt f/1.4 ljósop gerir linsuna einstaklega öfluga í lítilli birtu og hentar sérstaklega vel fyrir næturmyndun og stjörnuljósmyndun. Ellefu blaða hringlaga ljósop skapar mjúkt og náttúrulegt bokeh sem gefur myndunum faglegt útlit og fallega dýpt.

Direct Drive Super Sonic Wave Motor fókuskerfið ásamt innra fókuskerfi tryggir hraðan, nákvæman og hljóðlátan sjálfvirkan fókus sem hentar bæði ljósmyndun og myndbandsupptökum. Linsan býður einnig upp á náttúrulega handfókusstýringu og sérstillanlegan focus hold hnapp fyrir skjótan aðgang að stillingum.

Ljósopshringinn er hægt að gera hljóðlausan (de-click) fyrir mjúkar breytingar við myndbandsupptökur og ryk- og rakavarin hönnun tryggir áreiðanleika við erfiðar aðstæður. Fluorine húðun á fremsta linsuelementi hrindir frá sér vatni, ryki og fingraförum og auðveldar þrif og viðhald.